
Minningar- og afmælistónleikar um Hörð Strandamann
Næstkomandi laugardagskvöld, 4. mars frá klukkan 20-23, er boðið til minningartónleika og skemmtunar á Útgerðinni við Stillholt á Akranesi. Þá munu börn Harðar Jónssonar, þau Geir, Harpa og Hrafnhildur heiðra minningu föður síns í tilefni þess að hann hefði orðið 70 ára 8. mars. Geir mun spila og syngja á Útgerðinni og fleiri trúbadorar stíga á svið. Geisladiskur með lögum Harðar verður til sölu. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.