Vor í lofti á Merkurtúni – myndir

Það var aldeilis fjörið á hoppubelgnum á Merkurtúni á Akranesi þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið þar fram hjá skömmu eftir hádegið í dag. Þar voru á ferðinni nemendur úr 1. bekk í Brekkubæjarskóla sem fóru úr Frístund út í góða veðrið og héldu í smá bæjarferð. Þau ákváðu að nýta sér þetta góða veður og fá smá útrás enda alveg ástæða til. Sólin skein og vorfílingur í loftinu enda þótt það sé bara 1. mars en um að gera að njóta þangað til næsta lægð kemur í heimsókn.  

Vor í lofti á Merkurtúni - myndir - Skessuhorn