Önnur síkisbrúnna er illa farin eftir flóðin og stöplar undir henni hallast. Ljósm. mm

Vegagerðin vinnur að viðgerðum eftir leysingarnar

Starfsmenn Vegagerðarinnar á Vesturlandi hafa undanfarna viku reynt að fá heildarsýn yfir ástand vega eftir leysingarnar í byrjun síðustu viku. Stórtjón varð í kjölfar flóðanna og hleypur það á tugum milljóna króna. Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi, segir því í mörg horn að líta.

Vegagerðin vinnur að viðgerðum eftir leysingarnar - Skessuhorn