Öskudagsgleði á Akranesi – lífleg myndasyrpa

Það var ýmislegt í gangi í leik- og grunnskólum Akraneskaupstaðar í morgun á sjálfan öskudaginn. Blaðamaður Skessuhorns fór í heimsókn í alla skóla bæjarins og kíkti fyrst við í leikskólanum á Akraseli þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni, síðan var förinni heitið á Garðasel þar sem söngstund var í gangi, þá á Teigasel þar sem krakkarnir fengu snakk úr tunnunni og að lokum á Vallarsel þar sem ýmislegt var til skemmtunar. Í Brekkubæjarskóla var mikil stemning, bæði innan dyra sem utan og í íþróttahúsinu og í Grundaskóla voru yngri krakkarnir uppáklæddir á meðan þau eldri voru með litaþema og flest í náttfötum.

Öskudagsgleði á Akranesi - lífleg myndasyrpa - Skessuhorn