
Hér taka stoltir sigurvegarar í Barnaflokki við verðlaunum sínum. Ljósm. iss.
Fyrsta KB mótið fór fram um helgina
Fyrsta mótið af þremur í KB mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram í Reiðhöllinni Faxaborg síðastliðin laugardag. Keppt var í fjórgangi í öllum flokkum. Góð þátttaka var á mótinu og mikið um flottar sýningar. Úrslit flokkanna má sjá hér fyrir neðan en KB mótaröðin er einstaklingskeppni þar sem öll mótin telja til stiga og fimm efstu í hverjum flokki verða verðlaunaðir að lokinni síðustu keppni. Næst verður keppt í tölti laugardaginn 4. mars.