Breytingar á lögum um dvalarleyfi útlendinga og vegabréfsáritanir

Dómsmálaráðuneytið hefur nú lagt fram í Samráðsgátt drög að umdeildu frumvarpi til breytinga á útlendingalögum um dvalarleyfi útlendinga. Hægt er að gera við það athugasemdir til 7. mars næstkomandi. Mál þetta var eitt hið umdeildasta á yfirstandandi þingi og beitti stjórnarandstaðan málþáfi í vetur til að tefja framgang þess. „Frumvarpinu er ætlað að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna til hagsbóta fyrir umsækjendur um dvalarleyfi. Breytingarnar eru að mestu ívilnandi fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og dvalarleyfishafa hérlendis,“ segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Hér á eftir fylgir samantekt á helstu þáttum sem breytast verði frumvarpið að lögum::

Breytingar á lögum um dvalarleyfi útlendinga og vegabréfsáritanir - Skessuhorn