
Fyrsta tölublaðið
Í dag eru rétt 25 ár frá því fyrsta tölublað Skessuhorns kom út, en það var 18. febrúar 1998. Blaðið var 12 síður og prentað í 5.400 eintökum, enda í fyrstu dreift ókeypis um allan fjórðunginn. Síðar breyttist þetta form yfir í áskrift og blaðið er í dag prentað í 3.700 eintökum auk rafáskriftar í nokkur hundruð eintökum. Blaðið dregur nafn sitt af samnefndu fjalli, tilkomumiklum hamratindi í Skarðsheiði sem vakir yfir byggðinni og sést víða að.