
Hertar reglur taka gildi um skoðun ökutækja
Næstkomandi miðvikudag, þann 1. mars, tekur ný skoðunarhandbók ökutækja gildi. Um leið verða talsverðar breytingar á því hvernig skoðunarfyrirtæki skulu afgreiða frá sér bifreiðar sem eitthvað er athugavert við. Handbókin leysir af hólmi núverandi skoðunarhandbók sem tók gildi fyrir réttum sex árum síðan. „Nýja handbókin er að langstærstu leyti sambærileg þeirri eldri hvað varðar skoðunaratriði, skoðunaraðferðir, tækjabúnað og dæmingar. Þó má finna áherslubreytingar, ný skoðunaratriði og nýja uppsetningu,“ segir í tilkynningu frá Samgöngustofu.