Akraneskaupstaður býður upp á fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi grunnskólanna

Í næstu viku hefst vetrarfrí í grunnskólum Akraneskaupstaðar; Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Það hefst fimmtudaginn 23. febrúar og lýkur mánudaginn 27. febrúar. Í tilefni af því býður Akraneskaupstaður öllum börnum og fjölskyldum þeirra upp á skemmtilega dagskrá þessa þrjá daga og er ýmislegt í boði. Ítarlega má lesa um dagskrána í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar.