Sigrún Ósk tók tímabundið við starfi ritstjóra Skessuhorns af Magnúsi Magnússyni árið 2008.

Fyrstu skrefin á Skessuhorni – Blaðabörn geta ýmislegt

Á síðustu 25 árum hafa á annað hundrað manns starfað á Skessuhorni, þar af um hundrað blaðamenn í skemmri eða lengri tíma. Margir hafa um leið verið að taka sín fyrstu skref í blaðamennsku, sumir haldið áfram á þeirri braut, en aðrir söðlað um og farið í önnur verk. Þó virðist sammerkt með þeim að sú reynsla sem þeir öðluðust á ritstjórninni hefur reynst þeim dýrmætt veganesti. Núverandi og nýjasti blaðamaður Skessuhorns tók púlsinn á sex fyrirrennurum sínum í starfi og forvitnaðist um þeirra tíma á Skessuhorni, hvað hefur gerst síðan þeir sögðu skilið við blaðið og hver þeirra sýn er á héraðsfréttablaðið Skessuhorn í dag.

Fyrstu skrefin á Skessuhorni - Blaðabörn geta ýmislegt - Skessuhorn