
Söfnunin Börn hjálpa börnum hófst í Brekkubæjarskóla
Samtökin ABC barnahjálp hófu í dag söfnunina Börn hjálpa börnum og að þessu sinni hófst hún í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Söfnunin er nú haldin í 24. skiptið en hefur ekki farið fram síðustu ár vegna heimsfaraldurs. Hjalti Skaale Glúmsson, framkvæmdastjóri ABC á Íslandi, kom í 5. bekk í Brekkubæjarskóla eftir hádegi í dag og var með kynningu um starfsemi samtakanna. Fróðleiksfúsir og forvitnir nemendur hlustuðu vel og spurðu Hjalta margra og skemmtilegra spurninga sem hann svaraði af bestu getu. Nemendur Brekkubæjarskóla og fjöldi annarra grunnskóla á öllu landinu munu svo ganga í hús um nærliggjandi hverfi hjá sér á komandi dögum og safna framlögum í söfnunarbauka fyrir hönd ABC. Frá upphafi hafa nemendur grunnskóla landsins safnað yfir 130 milljónum króna til styrktar fátækum börnum í Afríku og Asíu. Í gegnum árin hafa skólabyggingar risið og heimili sem mörg börn hafa notið góðs af.