
Harry Potter þema í fimmta bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar
Fimmti bekkur í Grunnskóla Snæfellsbæjar ákvað að breyta til eina vikuna og settu upp Harry Potter þema. Það var nánast allt tekið niður og skreytingar settar upp í staðinn. Það var búin til þessi ævintýraveröld með ljósum, kertum, leikmunum úr Harry Potter og dregið var fyrir skápa og hillur með grænum flauels dúkum. Margir nemendur komu í búningum, með Harry Potter dót að heiman, settu ör á ennið á sér og tóku fullan þátt í þemavikunni.