Geymsla á olíu og bensíni varasöm

Olíu skal meðhöndla með varúð og gæta þess að hún komist ekki með neinum hætti út í jarðveg, niðurföll, frárennslislagnir, vatnsföll eða aðra staði þar sem hún getur dreifst um og valdið mengun. Umhverfisstofnun bendir á að geymsla á olíuefnum í hýbýlum manna svo sem í bílskúrum, í smærri útiskúrum eða við húsvegg getur verið mjög varasöm og valdið bæði íkveikju- og sprengihættu. Einnig er með öllu óheimilt að losa hvers kyns olíuefni í niðurföll eða önnur fráveitukerfi og skulu þau ætíð vera geymd í traustum lekabyttum þar sem tryggt er að efnin komist ekki niður í frárennslið. 

Geymsla á olíu og bensíni varasöm - Skessuhorn