Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir og Sigurbjörn Hansson við barinn á Kaffi 59. Ljósm. tfk.

Eigendur Kaffi 59 vilja breyta til

Veitingastaðurinn Kaff 59 stendur í alfaraleið við Grundargötu 59 í Grundarfirði. Eigendur veitingastaðarins eru þau Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir og Sigurbjörn Hansson og hafa þau rekið staðinn saman síðan í byrjun árs 2020. Áður rak Anna Guðrún staðinn með dóttur sinni, Berglindi Jósepsdóttur, en hún féll frá í lok árs 2019. „Ég fékk þetta bara upp í hendurnar þegar Begga konan mín féll frá í desember 2019. Þetta er algjörlega ekki það sem ég hafði hugsað mér að starfa við enda vann ég sem vélstjóri á sjó áður,“ segir Sigurbjörn. „Og ég er að komast á aldur,“ segir Anna Guðrún og hlær en þau hafa auglýst staðinn til sölu undanfarin misseri.

Eigendur Kaffi 59 vilja breyta til - Skessuhorn