Frumvarp um sameiningu héraðsdóma til umsagnar

Dómsmálaráðherra hefur lagt drög að frumvarpi til laga um sameiningu héraðsdómstóla fram í samráðsgátt.  Með frumvarpinu, sem byggist einkum á skýrslu starfshóps um sameiningu héraðsdómstólanna frá desember 2022, er lagt til að átta héraðsdómstólar landsins verði sameinaðir í einn dómstól undir nafninu Héraðsdómur. Lagt er til að yfirstjórn hans verði staðsett í Reykjavík, að dómstóllinn hafi átta lögbundnar starfsstöðvar á þeim stöðum sem héraðsdómstólar eru nú starfræktir auk þess sem gerð er tillaga um lögbundinn lágmarksfjölda starfsmanna á hverri starfsstöð. Kveðið verði á um það í lögum um dómstóla að þrír starfsmenn verði að lágmarki starfandi á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi.

Frumvarp um sameiningu héraðsdóma til umsagnar - Skessuhorn