Ólafsvík. Ljósm. Alfons Finnsson.

Jafningjahittingur krabbameinsgreindra í Snæfellsbæ

Fram kemur á heimasíðu Snæfellsbæjar að nú sé í bígerð á vegum Krabbameinsfélagsins að koma á fót í Snæfellsbæ fundi með þeim sem fengið hafa krabbamein og aðstandendum þeirra. Það er stórt mál að fá krabbamein og það er mjög margt sem kemur upp hjá þeim sem það fær. Meginmarkmið með svona fundi/hittingi er að spjalla saman og læra um sjúkdóminnn hvert af öðru. Einnig að stuðla að bættri andlegri og líkamlegri líðan. Það er mikils virði að geta rætt þessi mál við aðra þá sem lent hafa í svipaðri reynslu.

Jafningjahittingur krabbameinsgreindra í Snæfellsbæ - Skessuhorn