
Varað við karamellum sem gætu innihaldið plast
Matvælastofnun varar við neyslu á Sanders saltkaramellu með mjólkursúkkulaði, vegna þess að varan gæti innihaldið aðskotahlut (plast).
Costco hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.