
Ómar Ingi Magnússon er Íþróttamaður ársins 2022. Ljósm. skjáskot af ruv.is
Ómar Ingi íþróttamaður ársins – Kristín í áttunda sæti
Handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon, leikmaður þýska liðsins Magdeburg og íslenska landsliðsins, var í gærkvöldi kjörinn Íþróttamaður ársins 2022 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er annað árið í röð sem Ómar hlýtur þessa nafnbót og var hann með sögulega yfirburði í kjörinu í ár. Ómar fékk alls 615 atkvæði og var efstur á 30 af 31 atkvæðaseðli í ár og munaði aðeins fimm stigum að hann ynni með fullu húsi.