Ragmagnslaust á hluta Akraness

Klukkan tvö í nótt varð rafmagnslaust á Akranesi vegna háspennubilunar. Búið er að tengja hluta bæjarins að nýju. Í tilkynningu frá Veitum klukkan 07 í morgun sagði að bilunin væri stærri en gert hafi verið ráð fyrir. „Starfsmenn Veitna vinna hörðum höndum að því að koma rafmagni aftur á alla notendur sem allra fyrst. Ljóst er að sú vinna mun standa fram eftir degi.“

Ragmagnslaust á hluta Akraness - Skessuhorn