
Hulda Vilmundardóttir. Ljósm. gj.
Það skemmtilega í tilverunni
Ég geng heim að húsi Huldu Vilmundardóttur í Grundarfirði og stefni að útidyrunum. Við hlið mér eru opnar dyr á glerskála og þar situr fallega klædd eldri kona sem er í símanum. Hún veifar mér og bendir mér á að ganga inn. Við dyrnar er kaffibolli og rjúkandi sígaretta sem húsráðandi hefur ekki haft tíma til að klára.