
Kristín Þorleifsdóttir. Myndin er tekin á pallinum við hús hennar í Stykkishólmi.
Hönnun snýst um fólk
Kristín Þorleifsdóttir var fyrst Íslendinga til að ljúka doktorsprófi í landslagsarkitektúr eða umhverfishönnun, eins og hún kallar það. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en býr nú í Stykkishólmi. Þar starfar hún við sitt helsta áhugamál; að móta umhverfi fyrir fólk í sátt við náttúruna.