Snæfell mætir Haukum í bikarnum í janúar. Ljósm. sá

Snæfell mætir bikarmeisturum Hauka

Dregið var í undanúrslitum í VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik í hádeginu í Laugardalshöll í gær. Snæfell úr Stykkishólmi sem leikur í 1. deild mun etja kappi við úrvalsdeildarlið Hauka sem hefur hampað bikarnum síðustu tvö tímabil.

Snæfell mætir bikarmeisturum Hauka - Skessuhorn