
Útskriftarhópurinn framan við skólann og við nýja listaverkið sem þau Olena Sheptytiska og Mykola Kravets frá Úkraínu gerðu. Þau eru nú búsett í Grundarfirði.
Ellefu brautskráðir frá FSN í Grundarfirði
Föstudaginn 16. desember brautskráðust ellefu nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust fjórir nemendur; Bjartur Bjarmi Barkarson, Dominika Borkowska, Guðmundur Óli Hafþórsson og Gunnlaugur Páll Einarsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðust þau Íris Birta Bergmann Heiðarsdóttir og Símon Andri Sævarsson Walter. Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðust fimm nemendur; Atli Ágúst Hermannsson, Kolbrún Júlía Erlendsdóttir, María Líf Flosadóttir, Vaka Þorsteinsdóttir og Þorvaldur Guðmundsson. Með hæstu meðaleinkunn við útskrift nú var Íris Birta Bergmann Heiðarsdóttir.