{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Búið er að slökkva eld í bílhræjum á sorpmóttökustöðinni við Höfðasel á Akranesi. Eldur varð laus þar á þriðja tímanum í dag og lagði gríðarmikinn reyk frá svæðinu þegar um 300 bílhræ brunnu. Nú um klukkan 17:30 vann slökkvilið við að kæla stálið og færa bílhræin til. Einkum er það hvítleit vatnsgufa sem stígur upp af svæðinu. Slökkviliðið verður með vakt á svæðinu í nótt.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-57439\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Eldur_8-600x450.jpg\" alt=\"\" />\r\n\r\n \r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}