Slökkvistarf mun taka langan tíma – fleiri myndir af bruna við Höfðasel
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar berst áfram við eld sem kom upp í bílhræjum á sorpmóttökusvæðinu við Höfðasel 16 á Akranesi um klukkan 14:30 í dag. Þar logar mikill eldur í á að giska 300 bílhræjum. Mikinn og svartan reyk leggur af eldinum. Öll áhersla slökkviliðsmanna er lögð á að verja nærliggjandi úrgangssvæði, eins og sést á meðfygljandi drónamyndum. Grjótveggur og gámar aðskilja svæðin þannig að góðar vonir eru um að það takist. Engu að síður er búist við að slökkvistarf standi fram á kvöldið að minnsta kosti.\r\n\r\nLögregla beinir þeim tilmælum til íbúa á Akranesi að loka gluggum, sérstaklega ef vindátt breytist. Vindur hefur það sem af er brunanum verið vestanstæður og reyk lagt frá þéttbýlinu.\r\n\r\n[gallery size=\"full\" ids=\"57433,57435,57434\"]",
"innerBlocks": []
}
Slökkvistarf mun taka langan tíma - fleiri myndir af bruna við Höfðasel - Skessuhorn