{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í þessum þætti ræðir Gunnlaug við Skagakonuna Tinnu Grímarsdóttur en hún greindist fyrir ári síðan með fjórða stigs krabbamein, þá 34 ára gömul. Tinna segir frá aðdraganda þess að hún greinist með krabbamein og lýsir því hvað fer í gang tilfinningalega og inni á spítalanum, þegar krabbamein er komið í ljós.\r\nTinna hefur farið í gegnum þetta ferli allt með jákvæðu hugarfari en hún hefur sýnt og sagt frá stöðu mála hverju sinni á Instagram-reikningi sínum og vonast til þess að það hjálpi fólki sem er í sömu stöðu og hún.\r\nTinna er slaufuberi Krabbameinsfélags Akraness í ár en hún hefur verið áberandi í Bleikum október.\r\n\r\n \r\n\r\nhttps://soundcloud.com/skessuhorn/5-skinkuhornid-tinna-grimars?si=f83fb46c6e5344aebcb3aea1589b5871&utm_source=clipboard&utm_medium=text&utm_campaign=social_sharing",
"innerBlocks": []
}