{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laust eftir klukkan 18 í dag var tilkynnt um árekstur tveggja bíla í Skollagili í Hálsasveit, á þjóðveginum ofan við Hraunfossa. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins og m.a. kallað til slökkvilið þar sem beita þurfti klippum á bíl. Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin í Húsafell og mun flytja slasaðan einstakling á spítala. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Mikil hálka er á veginum sem er lokaður þar til aðgerðum verður lokið.",
"innerBlocks": []
}