{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eldur kviknaði í yfir hundrað bílhræjum um tvö leytið á gámasvæði Terra við Höfðasel á Akranesi. Bílarnir höfðu verið olíutæmdir og voru tilbúnir til útflutnings en neisti hefur komist að þeim.\r\n\r\nSlökkviliðið getur lítið aðhafst. Prófað var að sprauta vatni á eldinn en hann varð megnugri við það.\r\n\r\n\"Það var verið að vinna við bílana, að skera undan hvarfakúta og það hljóp neisti líklega í eitthvað gamalt sem hefur lekið undan einhverjum bílnum þarna og það hefur kveiknað eldur út frá því og svo bara kviknað í rest,\" segir Garðar Axelsson, varðstjóri í lögreglunni á Vesturlandi.\r\n\r\n<em>Fréttin verður uppfærð</em>\r\n\r\n[video width=\"1920\" height=\"1080\" mp4=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/20221027_144353.mp4\"][/video]\r\n\r\n \r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"57421,57422,57423,57424\"]\r\n\r\n \r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"full\" ids=\"57425,57426,57427,57428,57429\"]",
"innerBlocks": []
}
Eldur á gámasvæði Terra - Myndband og myndir - Skessuhorn