Safetravel fær innspýtingu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í liðinni viku að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu vegna endurgerðar á vefnum safetravel.is. Landsbjörg hefur rekið vefinn um árabil en hann er helsti upplýsingavefur almannavarna til að koma mikilvægum skilaboðum til ferðamanna, t.d. vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara. Endurgerð vefjarins er talin brýn til að auka upplýsingamiðlun og leita leiða til að ná til allra þeirra sem fara um landið. Landsbjörg mun áfram vinna verkefnið í samstarfi við fyrirtæki í ferðaþjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar, Samgöngustofu, Veðurstofuna og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.",
  "innerBlocks": []
}
Safetravel fær innspýtingu - Skessuhorn