
Umferðarljósin á þjóðveginum gegnt Klettaborg. Ljósm. gj.
Umferðarljós í Borgarnesi tekin til skoðunar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skessuhorni hafa borist nokkrar fyrirspurnir að undanförnu vegna nýju umferðarljósanna a þjóðveginum gegnt leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi. Fólk nefnir að þau verði fyrirvaralaust rauð án þess að nokkur sé í sjónmáli og það gerist líka þótt aðkomandi bíll hafi ekki ekið of hratt. Þetta geti valdið því að íbúar sem aka oft um svæðið hætti að taka mark á ljósunum og þar með sé orðin aukin slysahætta.\r\n\r\nSkessuhorn hafði samband við Vegagerðina vegna málsins og fékk greið svör frá Birgittu Rán Ásgeirsdóttur, deildarstjóra Tæknideildar Vestursvæðis. Segir hún að Vegagerðin hafi verið að fylgjast með ljósunum og þau séu ekki alveg að virka eins og fyrirhugað var, en verið var að prufa að nota svokallaða rauðljósaaðferð. Ljósin eiga þá alltaf að vera rauð, keyri fólk á leyfilegum hámarkshraða fær það grænt, ef það ekur of hratt kemur ekki grænt fyrr en bifreiðin er stopp.\r\n\r\nHinsvegar hefur umhverfið í kringum ljósin skapað erfiðar aðstæður, vegna gatnamótanna við Garðavík og leikskólann Klettaborg. Því er þetta ekki að ganga eins og æskilegt var.\r\n\r\nFyrirhugaður er fundur í næstu viku þar sem ákveðin verður breyting á þessum umferðarljósum og verður það væntanlega tilkynnt þegar niðurstaða liggur fyrir.",
"innerBlocks": []
}