Slæmu veðri spáð um allt land en verstu norðanlands
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Litakóða viðvaranir Veðurstofunnar fyrir morgundaginn bera nú alla liti; gula, appelsínugula og rauða. Spáð er norðan stormi víða um land á morgun og er rauð viðvörun í gildi á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Spáð er mikilli úrkomu sem líklegt er að falli að stórum hluta sem slydda eða snjókoma. Veðurstofan hefur fært viðvörunina sem var í gildi í gær úr appelsínugulri í rauða fyrir Norðurlandi eystra og Austurland að glettingi. Sú viðvörun mun gilda frá því upp úr hádegi á morgun, sunnudag og fram til miðnættis.\r\n\r\nSpáð er norðan stormi upp á 20-28 m/s með mikilli úrkomu. Slydda verður við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á að ísing setjist á raflínur. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Hér við vesturströnd landsins er gul viðvörun í gildi, einkum vegna hvassviðris.\r\n\r\n<a href=\"http://vedur.is\">Fólk er hvatt til að fylgjast með veðurspám og lýsingum á vef Veðurstofunnar.</a>",
"innerBlocks": []
}
Slæmu veðri spáð um allt land en verstu norðanlands - Skessuhorn