
Rútan vel niðurgrafin í grassvörðinn milli gamla skólahússins og styttunnar af Snorra. Ljósm. ts
Sýndi einbeittan vilja til festu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ökumaður rútu með erlenda ferðamenn innanborðs var talsvert sunnan við sig, eins og það er gjarnan orðað, þegar hann ók bílnum út á gras og setti á bólakaf fyrr í vikunni. Hópurinn var á ferð um Reykholt í Borgarfirði. Um borð í rútunni var eldra fólk og er nokkuð ljóst að bílstjórinn vildi spara fólkinu sporin þegar skoða átti styttu Gustav Vigeland af Snorra Sturlusyni í Reykholti. Til að komast á þennan stað þurfti ökumaðurinn fyrst að aka um mjóan veg meðfram kirkjugarðinum í Reykholti, síðan út af þeim slóða og stöðvaði að endingu för þétt við vegg gamla héraðsskólans og við hlið styttunnar af Snorra. Kalla þurfti til tvö öflug tæki til að draga rútuna upp á veg að nýju. Rútan er í eigu íslensks fyrirtækis en ökumaðurinn var erlendur. Vafalítið er hann vanur þéttari grassverði í heimalandi sínu.",
"innerBlocks": []
}