Hér er verið að hífa fyrstu húseiningarnar á sökklana. Ljósm. af.

Nýtt hús eldri borgara að rísa í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í morgun var byrjað að reisa húseiningar á lóðinni Ólafsbraut 23 í Ólafsvík, milli Landsbankans og Söluskála ÓK. Um er að ræða hús sem flutt er notað frá Öskjuhlíð í Reykjavík þar sem það var til skamms tíma leikskóli Hjallastefnunnar. Einingarnar voru í upphafi byggðar hjá SG húseiningum á Selfossi. Húsið mun á komandi misserum þjóna hlutverki félagsstarfs aldraðra. Það verður um 500 fermetrar og rúmast því öll starfsemi eldri borgara undir einu þaki innan tíðar.\r\n\r\n<strong>Engin rakavandamál</strong>\r\n\r\nSkessuhorni barst ábending þess efnis að húsin sem um ræðir hafi mögulega verið gölluð á fyrri stað sökum raka. Því neitar Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar alfarið. Aðspurður svarar Kristinn því til, vegna þessa orðróms, að í öðru húsi í Öskjuhlíð, sem bærinn keypti ekki, hafi raki verið greindur fyrir tveimur árum meðan það þjónaði Hjallastefnunni. „Það er víðsfjarri að sveitarfélagið hafi verið að kaupa þetta gallaða hús. Hið rétta er að fyrir tveimur árum var staðfestur raki í millibyggingu í húsi Hjallastefnunnar milli húsa 1 og 2. Var sú bygging rifin. Við vorum því ekki að kaupa það hús en keyptum, og höfum nú flutt til Ólafsvíkur, hús sem báru númerin 3 og 4 - og 6 og 7. Þessi hús voru notuð til kennslu barna fram á þetta ár og eru í ágætu ásigkomulagi. Ég ítreka að það er enginn grunur um að í þeim hafi verið rakavandamál og enn síður mygla,“ segir Kristinn.",
  "innerBlocks": []
}
Nýtt hús eldri borgara að rísa í Ólafsvík - Skessuhorn