Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Byggðarráð svarar fyrirspurn um uppbyggingu vindorkuvera

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var dagskrárliður þar sem svarað er beinni fyrirspurn frá Thelmu Dögg Harðardóttur áheyrnarfulltrúa í byggðarráði sem jafnframt er fulltrúi VG í sveitarstjórn. Thelma spyr þar eftir afstöðu byggðarráðs til vindorkuvera. Svar byggðarráðs er þannig í heild sinni:\r\n\r\n„Byggðarráð Borgarbyggðar mun aðeins styðja uppbyggingu vindorkuvera svo framarlega að hagsmunir íbúa séu hafðir að leiðarljósi. Eins og lagaumgjörðin er í dag er ekki auðséð að hagur sé af slíkri uppbyggingu. Innan Borgarbyggðar og víðar á Íslandi er unnið að mati á nýtingu vindorku sem virkjunarkosts. Löggjafinn er sömuleiðis að vinna að lagaramma um nýtingu vindorku. Byggðarráð væntir þess að í slíkri löggjöf verði tryggt að íbúar og sveitarfélög á þeim svæðum verða fyrir áhrifum af nýtingu auðlindarinnar njóti með beinum hætti ávinnings af nýtingunni. Með hagsmuni íbúa Borgarbyggðar í huga þurfa þær forsendur að liggja fyrir áður en byggðarráð mótar sér afstöðu.“",
  "innerBlocks": []
}
Byggðarráð svarar fyrirspurn um uppbyggingu vindorkuvera - Skessuhorn