Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari að verki loknu.

Pétursvirki forðað frá eyðileggingu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í síðustu viku lauk Unnsteinn Elíasson grjóthleðslumeistari við endurbætur á býsna merkilegu mannvirki. Það nefnist Pétursvirki og stendur á jörðinni Englandi í Lundarreykjadal. Virkið var orðið illa farið og hafði laskast enn frekar núna í sumar, sennilega vegna jarðskjálfta inni á afréttinum. Pétursvirki er hlaðinn steinstöpull; 2,66 metrar á lengd, 1,8 metrar á breidd og 1,6 metrar á hæð. Virkið er á Hrútaborgum á Englandshálsi og var byggt af Pétri Georg Guðmundssyni árið 1889, en þá var Pétur aðeins tíu ára gamall og sat yfir ánum þarna á hálsinum.\r\n\r\n<em>Nánar í Skessuhorni sem kom út í gær.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Pétursvirki forðað frá eyðileggingu - Skessuhorn