
Frá löndun úr Steinunni SH á sunnudaginn. Kristmundur Sumarliðason og Ingólfur Aðalsteinsson hampa vænum fiski. Ljósm. af.
Mokveiði í dragnót
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dragnótarbáturinn Steinunn SH frá Ólafsvík lenti heldur betur í mokveiði rétt undan Ólafsvík á sunnudaginn. Köstuðu skipverjar dragnótinni aðeins þrisvar sinnum og var aflinn í þessum köstum yfir 63 tonn. Að sögn skipverja eru þeir þó ekki óvanir svona aflabrögðum. „Það er nóg af þorski í sjónum og mikið af sandsíli sem fiskurinn sækist í,“ sögðu þeir á bryggjunni í samtali við fréttaritara. Meðalverð á þorski þennan dag var í kringum 480 krónur svo þetta var góður dagur, sögðu þeir Sumarliði Kristmundsson og Ingólfur Aðalsteinsson.\r\n\r\nEinnig fór dragnótarbáturinn Esjar SH frá Rifi á sjó um hádegið og landaði í tvígang sama daginn, alls tæplega 40 tonnum. Fyrri túrinn gaf 21 tonn og eftir löndun var haldið aftur á veiðar og skilaði seinni túrinn tæplega 19 tonnum. Mjög stutt var á miðin.",
"innerBlocks": []
}