Listamenn í útivinnu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það viðraði vel í morgun fyrir listamennina á Akranesi sem nú skreyta veggi. Nafnarnir Bjarni Skúli Ketilsson og Bjarni Þór Bjarnason voru báðir á fullu við verk sín þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið um, eru langt komnir með þau. Sífellt voru bæjarbúar að gefa sig á tal við þá félaga og ekki alltaf sem verkin unnust í samfellu, enda eru þeir báðir ræðnir og kurteisir menn.\r\n\r\nBaski málar verk sitt á gafl gömlu mjölgeymslu Brims niður við höfn. Bjarni Þór málar hins vegar á norðurgafl gamla Landsbankahússins við Akratorg. Báðir eru þeir í verkum sínum með skírskotun til atvinnulífs liðinna tíma, en verkin eru engu að síður afar ólík. Baski segist sækja innblástur til kirkjuglugga í Flórens á Ítalíu, en hann málaði mikið í þessum stíl í kringum 2005. Bjarni Þór tekur fjallahringinn, líkt og horft sé í gegnum húsið, en á myndinni eru ýmis þekkt kennileiti á Akranesi, svo sem kútterinn, skip úr smiðju Þ&amp;E, vitinn, Akraneskirkja og fleira sem margir þekkja. Verk þeirra nafna munu ásamt fleiri útilistaverkum prýða bæinn sem hluti af sérstöku vegglistarátaki sem nú er í gangi og sagt hefur verið frá í Skessuhorni.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-55987\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Listamenn-i-utivinnu_2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Listamenn í útivinnu - Skessuhorn