Wout Droste er nýr þjálfari Kára sem leikur í þriðju deildinni. Ljósm. Kári

Wout Droste ráðinn þjálfari Kára

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi sem leikur í 3. deild karla hefur ráðið hinn hollenska Wout Droste sem nýjan þjálfara liðsins út tímabilið. Wout er leikmaður ÍA sem leikur í Bestu deild karla og hefur leikið þrjá leiki á þessu tímabili en hann hefur verið mikið frá í sumar vegna meiðsla. Wout er reynslumikill leikmaður sem hefur spilað stóran hluta ferilsins í efstu deild í Hollandi og er með mikinn áhuga á þjálfun segir á facebook síðu Kára.\r\n\r\nÁsmundur Haraldsson er fráfarandi þjálfari Kára en hann hætti um miðjan júní þegar hann fór með íslenska kvennalandsliðinu á Evrópumótið. Síðan þá hefur Teitur Pétursson þjálfað og stjórnað liðinu með aðstoð tveggja leikmanna Kára, þeim Andra Júlíussyni og Ingimar Elí Hlynssyni.\r\n\r\nFyrsti leikur Kára undir stjórn Wout Droste er í kvöld gegn Dalvík/Reyni á Dalvíkurvelli og hefjast leikar klukkan 18 að staðartíma.",
  "innerBlocks": []
}