Geitfjársetur tíu ára – Afmælishátíð á laugardaginn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á Háafelli í Hvítársíðu má finna Geitfjársetrið sem var stofnað árið 2012. Nú fagnar Geitfjársetrið 10 ára afmæli en haldið verður formlega upp á það laugardaginn 6. ágúst. Að Háafelli hafa hjónin Jóhanna B. Þorvaldsdóttir og Þorbjörn Oddsson ræktað geitur síðan 1989 en vilja þau kynna og veita fræðslu um geiturnar og þeirra afurðir. Á geitfjársetrinu taka þau á móti gestum yfir sumartímann sem vilja komast í návígi við geitur. Á hátíðinni á laugardaginn verður frír aðgangur í geitaskoðun og í kaffiveitingar ásamt því að geitaafurðir verða til sýnis og smakks. Ratleikur, hoppukastali og fleira verður í boði fyrir börnin og trúbador mætir á svæðið klukkan 17.",
"innerBlocks": []
}
Geitfjársetur tíu ára - Afmælishátíð á laugardaginn - Skessuhorn