
Stór hluti bryggjunnar hrundi. Ljósm reykholar.is
Stórtjón á höfninni á Reykhólum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðasta miðvikudag í liðinni viku hrundi niður stór hluti bryggjunnar á Reykhólum. Legið hefur fyrir um all langt skeið að bryggjan væri komin á tíma en hún er síðan 1974. Undanfarið hefur verið unnið að undirbúningi endurnýjunar stálþilsins og stækkunar bryggjunnar um leið. Í því hefur falist að dýpka og jafna botninn umhverfis bryggjuna og virðist hún ekki hafa þolað það.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að um mikið tjón sé að ræða og óljóst hvort Þörungaverksmiðjan á Reykhólum geti haldið áfram rekstri í bráð eða hvort töf verði á framleiðslu hjá verksmiðjunni en hún er að landa á höfninni á hverjum degi.\r\n\r\nLöndunarkrani Þörungaverksmiðjunnar, sem lokaðist inni þegar bryggjan gaf sig, náðist heilu og höldnu á fimmtudagsmorgun en verktakar voru fram eftir nóttu að fylla í skarðið í bryggjunni svo hann næðist. Grettir, þangflutningaskip Þörungaverksmiðjunnar, fór síðasta fimmtudag að sækja farm og búist við að ekki verði miklum vandkvæðum bundið að ná honum á land þó svigrúmið til að athafna sig við löndunina sé nú mun minna en áður var.\r\n\r\n \r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-55162\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Stortjon-a-hofninni-a-Reykholum2-600x270.jpg\" alt=\"\" />\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}