{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Við Hafnargötu 4 í Stykkishólmi, á besta stað í bænum, er rekið gistiheimilið og kaffihúsið Sjávarborg. Áður hét staðurinn Harbour hostel en í Covid voru gerðar ýmsar breytingar á rekstrinum. „Við opnuðum gistiheimilið 2013 eftir að hafa keypt húsið með fleirum. Fyrstu árin var það rekið undir nafninu Harbour hostel,“ segir Sigríður Jóhannesdóttir eigandi rekstursins. „Lengst af vorum við einungis með gistingu. Síðan opnaði kaffihúsið fyrir rúmum fjórum árum síðan, fyrst undir nafninu Kaffi Nú. Síðan skall Covid á og við nýttum tímann til að gera ýmsar breytingar á rekstrinum og húsinu. Meðal annars breyttum við nafni staðarins í Sjávarborg sem er sama heiti og húsið sjálft. Þetta er útkoman og við erum mjög ánægð með hana.“\r\n\r\nSjá má nánar viðtal við Sigríði Jóhannesdóttur í Skessuhorni sem kom út í dag.",
"innerBlocks": []
}
„Stykkishólmur er kjörinn áfangastaður“ - Skessuhorn