Borgaði upp bátinn á fimmta róðri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Viktor Alexandersson er 25 ára sjómaður og laganemi frá Stykkishólmi. Í vor gerði hann sér lítið fyrir og keypti bát fyrir grásleppuveiðar. Hann hefur nú farið í sex róðra og hefur tekist vel til á veiðunum en hann hefur nú þegar borgað upp bátinn með aflanum. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Viktors og fékk að forvitnast um hvernig ungur laganemi kaupir óvænt bát og heldur til sjós. ,,Ég var hérna heima um páskana og vissi af þessum bát. Símon [Sturluson] var búin að hringja í mig og spurði mig hvort mig langaði til að fara með honum á öðrum bát á veiðar og ég hugsaði með mér að það væri kannski ekki nóg sem heil sumarvinna því tímabilið væri bara 25 dagar. Þannig ég var bara með þetta bakvið eyrað en vissi líka af þessum bát til sölu. Svo ég fór og athugaði málið, ákvað svo bara að kaupa hann eftir að hafa fengið allt of mikinn stuðning frá fólkinu í kringum mig. Það sögðu allir að ég gæti ekki tapað á þessu í staðinn fyrir að segja: nei Viktor ekki vera að kaupa þér bát, það er kannski slæm hugmynd og þú ert nú laganemi. En ég fékk ekkert svoleiðis, það fannst öllum þetta bara góð hugmynd. Þannig ég keypti hann bara,“ segir Viktor.\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n<em>Nánara viðtal má sjá í nýjasta blaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Borgaði upp bátinn á fimmta róðri - Skessuhorn