
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Gísli Gíslason á stofnfundi Nýsköpunarnets Vesturlands (NýVest) í apríl síðastliðinn. Ljósm. vaks
Úthlutað nýsköpunarstyrkjum úr Lóu sjóðnum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Úthlutanir úr Lóu - nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina hafa nú verið tilkynntar og hljóta 21 verkefni styrk í ár. Verkefnin eru fjölbreytt og eru meðal annars á sviði nýsköpunar í matvælavinnslu, uppbyggingu í vistkerfi nýsköpunar og STEAM greina og rannsókna á sviði sjávarfallavirkjana. Þá sýndu umsóknir um styrkina að um land allt er mikill áhugi hvað varðar nýtingu og sköpun verðmæta úr þörungum. Fram kemur á vef Stjórnarráðs Íslands að alls bárust 100 umsóknir um styrki í ár og samtals var tæpum 100 milljónum króna úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur taldi skara fram úr. Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.\r\n\r\n<strong>Nokkrir styrkir á Vesturland</strong>\r\n\r\nÞörungamiðstöð Íslands, sem er nýstofnað rannsókna- og þróunarsetur um stórþörunga á Reykhólum, fékk styrk að upphæð 8,1 milljón en hæsta Lóu styrkinn að þessu sinni fékk Sjótækni ehf. á Tálknafirði, tólf og hálfa milljón.\r\n\r\nBreið þróunarfélag á Akranesi fékk tvo styrki frá Lóu. Sá fyrri hlýtur Algó ehf., 2,5 milljónir króna, fyrir verkefnið Særækt en það áformar uppskölun framleiðslu sæmetis, sjávargrænmetis sem til þessa hefur verið þróað út frá sjálfbærri nýtingu á villtri náttúruauðlind, með því að nýta einstakar aðstæður á Íslandi til ræktunar sjávarþörunga í blandaðri hringrásar-landrækt. Í verkefninu verða viðskiptalegar og tæknilegar forsendur grundvöllur arðbærrar særæktunar. Þá fékk Breið líftæknismiðja ehf. styrk upp á 2,8 milljónir króna en í lýsingu á því verkefni segir: „Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingarstig. Líftæknismiðjunni er ætlað að brúa bil milli grunnrannsókna og hagnýtingar hugmynda með því að veita frumkvöðlum og fyrirtækjum aðstöðu til uppskölunarrannsókna og þróunarvinnu á framleiðsluferlum.“\r\n\r\n<a href=\"https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/07/11/21-verkefni-hljota-styrk-ur-Lou-nyskopunarstyrkjum-fyrir-landsbyggdina/\"><em>Nánar má sjá upplýsingar um styrkþega og verkefnin á síðunni stjornarradid.is.</em></a>",
"innerBlocks": []
}