Duo BARAZZ – óvissuferð með orgel og sax í Hallgrímskirkju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti Grafarvogskirkju og Dorthe Højland saxófónleikari frá Danmörku sameina krafta sína sem Duo BARAZZ. Tónleikar verða í Hallgrímskirkju í Saurbæ á sunnudaginn klukkan 16. Þeir eru spunaferðalag um lendur tónlistarinnar þar sem kunnugleg lög bíða áheyrenda við hverja óvænta beygju - og til að spilla ekki óvissuferðinni verður efnisskráin ekki afhent fyrr en að tónleikunum loknum.\r\n\r\nDorthe Højland stundaði nám í saxófónleik og kennslufræðum við Tónlistarháskólann í Álaborg og síðar bæði saxófónleik og tónsmíðar hjá hinum margverðlaunaða Jane Ira Bloom í New York. Dorthe leikur með ýmsum tónlistarhópum, þ. á m. Dorthe Højland Group, Højland-Stief-Højland með hinum þekkta danska bassaleikara Bo Stief og saxófónkvartettinum SaxTalk. Hún er búsett í Ry í Danmörku.\r\n\r\nLára Bryndís Eggertsdóttir lauk einleikaraprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar undir leiðsögn Harðar Áskelssonar. Árið 2018 flutti Lára aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen á orgel og Lars Colding Wolf í semballeik. Einnig starfaði hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum. Í apríl 2022 tók Lára Bryndís við stöðu organista við Grafarvogskirkju í Reykjavík.\r\n\r\nÞetta er fjórða tónleikaárið að Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði en grunnhugmynd tónleikanna, sem haldnir verða í kirkjunni sjálfri, er að viðhalda staðnum sem menningarstað og mun hann með tímanum vonandi verða aðdráttarafl fyrir landsmenn sem og erlenda ferðamenn.\r\n\r\nAðgangseyrir er 3.000 kr. og eru allir velkomnir.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Duo BARAZZ – óvissuferð með orgel og sax í Hallgrímskirkju - Skessuhorn