{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bíllinn á þessari mynd var mannlaus í vegarskurði á Mýrunum seinni part dags í gær, þegar fréttaritari Skessuhorns átti leið um. Ekki er vitað með slys á fólki og líklegt að ökumaður og mögulega farþegar hafi komist af sjálfsdáðum úr bílnum og frá vettvangi. Í það minnsta var ekki búið að merkja bílinn lögregluborða til merkis um að búið væri að færa óhappið til bókar. Þar af leiðandi voru margir hugulsamir vegfarendur sem stoppuðu og gáðu inn í bílinn hvort einhver væri í vanda.",
"innerBlocks": []
}