Stafræn umsókn um ökunám

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sífellt eykst þjónusta hins opinbera í stafrænum heimi. Nú er hægt að finna stafræna umsókn um bráðabirgðaskírteini til ökunáms á Ísland.is en slík umsókn er fyrsta skrefið að því að hefja ökunám. Einstaklingar geta sótt um frá 16 ára aldri en þá geta tilvonandi ökumenn fyrst hafið ökunám til almennra ökuréttinda. Ferlið er stafrænt þar sem ökunemi skráir ökukennara og greiðir fyrir skírteinið. Allar upplýsingar úr umsókn eru skráðar beint í ökuskírteinaskrá. Ökunemi skilar inn mynd til sýslumanns í kjölfar umsóknar og læknisvottorði ef við á. Námsheimild er þá veitt í kjölfarið og ökunemi getur hafið nám með sínum ökukennara.  Árið 2021 sóttu 6.056 einstaklingar um að hefja ökunám.",
  "innerBlocks": []
}
Stafræn umsókn um ökunám - Skessuhorn