Handsama ketti á Hvanneyri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gæludýraeftirliti Borgarbyggðar hafa borist tilkynningar og ábendingar um ágang villtra eða hálfvilltra katta á Hvanneyri, en frá þessu segir í frétt á heimasíðu Borgarbyggðar. Hvanneyri er innan friðlandsins í Andakíl þar sem í stjórnunar- og verndaráætlun koma fram þau tilmæli til íbúa á verndarsvæðinu að halda köttum sínum innandyra yfir varptímann, frá 20. apríl til 20. júlí ár hvert til verndar fuglalífi. Til að bregðast við þessum tilkynningum er áætlað að setja út búr á Hvanneyri á næstu dögum til að fanga villta og hálfvillta ketti. Þeim tilmælum er því beint til íbúa að halda heimilisköttum innandyra á næstunni. Þá er minnt á að skylt er að einstaklingsmerkja hunda og ketti og sækja um leyfi til sveitarfélagsins til að halda hunda og ketti í þéttbýli.",
  "innerBlocks": []
}
Handsama ketti á Hvanneyri - Skessuhorn