Frá Borgarnesi. Ljósm. gj.

Dagur aðgengis fyrir alla 2026 – römpun í Borgarnesi næst á dagskrá

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alltof víða er fötluðum gert erfitt fyrir að sækja sér þjónustu eða stunda innkaup vegna slæms aðgengis. Bæði stofnanir og fyrirtæki geta haft áhrif á þá stöðu með því að skoða aðstæður fyrir hjólastóla við innganga og bæta úr þar sem þarf. Árið 2015 var ákveðið að 11. mars það árið yrði Dagur aðgengis fyrir alla og það hefur síðan breiðst út til annarra landa. Þekkt er framtak Haraldar Þorleifssonar sem stóð fyrir átaki í að setja upp rampa fyrir hjólastóla í Reykjavík undir heitinu Römpum upp Reykjavík.\r\n\r\n<strong>Viðbrögð sveitarfélaga á Vesturlandi</strong>\r\n\r\nHaraldur hefur nú sett annað sambærilegt verkefni í gang sem ber heitið Römpum upp Ísland.  Þessu tengt hefur hann sent erindi til allra sveitarfélaga á landinu með fyrirspurn um hvort þau vilji vera með í verkefninu og rampa upp á helstu þéttbýlisstöðum. Sem dæmi um viðbrögð sveitarfélaga á Vesturlandi má nefna að bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur falið umhverfis- og skipulagssviði að skrá sveitarfélagið til þátttöku og í framhaldinu að athuga með styrki til þess að gera úttekt á aðgengismálum í og við opinberar byggingar og mannvirki í sveitarfélaginu. Byggðarráð Dalabyggðar fagnaði erindinu á fundi nýverið og vísaði því til umsjónarmanns framkvæmda.\r\n\r\n<strong>Framkvæmdir að hefjast í Borgarnesi</strong>\r\n\r\nVerkefnið er komið á rekspöl í Borgarnesi í samvinnu við Borgarbyggð. Þar er Hrafnhildur Tryggvadóttir deildarstjóri umhverfis- og framkvæmdamála. Hún hafði á sínum tíma samband við Þorleif Gunnlaugsson stjórnarformann og framkvæmdastjóra verkefnisins og munu aðgerðir hefjast innan skamms. Fulltrúar Römpum upp Ísland eru búnir að koma á svæðið og skanna hvar helst verður farið í framkvæmdir. Í raun er ástandið mjög gott hjá einkaaðilum og margir staðir voru þegar í fullkomnu lagi, en enn má bæta um betur. Við römpunina er farið eftir ákveðinni forgangsröðun og áhersla eingöngu lögð á fjölsótta staði eins og kaffihús, veitingastaði og verslanir. Þess vegna var ekki verið að skoða öll fyrirtæki, skrifstofur eða þess háttar. Fjöldi rampa miðast við höfðatölu og má reikna með að 6-7 rampar komi í Borgarnes í þessu átaki. Ekki er í öllum tilvikum um umfangsmikið verk að ræða heldur aðeins að setja aflíðandi hækkun á gangstéttar til að auðvelda aðkomu. Verkið er unnið í náinni samvinnu við sveitarfélagið og tilheyrandi rekstraraðila.\r\n\r\n<strong>Þúsund rampar 2026</strong>\r\n\r\nForsvarsfólk Römpum upp Ísland hefur sett sér það markmið að þúsund rampar verði komnir á sinn stað fyrir Dag aðgengis fyrir alla eftir fjögur ár, þ.e. 11. mars 2026 og hófst verkefnið í Hveragerði og er í gangi í Keflavík núna. Tilgangurinn er er skýr; að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Haraldur Þorleifsson er stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno og er hvatamaður verkefnisins eins og áður sagði. Stofnfé framkvæmdasjóðs þess eru framlög frá jöfnunarsjóði auk stuðnings einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til  að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra um allt land.\r\n\r\nNánar má sjá um þetta á <a href=\"http://www.rampur.is\">www.rampur.is</a> og þar er hægt að sækja um stuðning aðgengissjóðs verkefnisins til framkvæmda.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54190\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54190 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Dagur-adgengis-fyrir-alla-2026_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Við verslunina Bjarg á Akranesi er vel hugað að aðgengi fyrir alla.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Dagur aðgengis fyrir alla 2026 – römpun í Borgarnesi næst á dagskrá - Skessuhorn