
Hér leggur Steini Eyþórs af stað úr Baulunni, en blaðamaður Skessuhorns var svo heppinn að rekast á hann þar og ná af honum mynd í gær. Með honum hjólaði Ragnar Hjörleifsson frá Heggsstöðum. Ljósm. sþ
Hjólar Vestfjarðahringinn til styrktar Píeta samtökunum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þorsteinn Eyþórsson leggur nú land undir fót og hjólar Vestfjarðahringinn, orðinn 68 ára gamall. Hann stefnir á að ferðin taki um tólf daga með einum hvíldardegi á Ísafirði en leiðin telur 755 kílómetra. Steini, eins og hann er yfirleitt kallaður, er frá Borgarnesi og hóf ferðalag sitt þar við Geirabakarí í gær. Þangað mætti fjöldi fólks til að hvetja hann áfram og gefa honum byr fyrstu metrana. Meðal annars mætti Slökkvilið Borgarbyggðar til að kveðja Steina sérstaklega, en hann hefur verið liðsmaður í slökkviliðinu í áratugi. Steini hjólar til styrktar Píeta samtökunum í minningu tengdasonar síns, Árna Guðjónssonar, sem féll fyrir eigin hendi síðastliðinn vetur. Áður hafði Steini hjólað Snæfellsnesið árið 2015 og hringinn í kringum Ísland árið 2016, þá til styrktar ADHD samtökunum. Eiginkona Steina, Anna Þórðardóttir, mun fylgja honum eftir á húsbíl til áningar en hann áætlar að hjóla um 71 kílómetra á dag.\r\n\r\nSteini byrjaði að hjóla fyrir átta árum síðan, þá sér til heilsubótar og vegna aukinnar vakningar um verndun umhverfisins. Vinur Steina á Ísafirði sagði hann ekki hafa klárað hringinn árið 2016 þar sem Vestfirðirnir væru eftir. Má þess vegna formlega segja að hringnum ljúki þegar Steini renni heim í Borgarnes í næstu viku. Hægt er að fylgjast með ferð Steina á Facebook síðunni ,,Athygli, já takk – Hjólað Vestfjarða-hringinn“ og finna þar upplýsingar til að leggja málefninu lið.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54216\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54216 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Hjolar-Vestfjardahringinn-til-styrktar-Pieta-samtakanna_2-600x353.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"353\" /> Slökkvilið Borgarbyggðar mætti til að kveðja Steina sérstaklega fyrir brottför.[/caption]",
"innerBlocks": []
}