
Byrjunarlið Kára í leiknum gegn KFG. Ljósm. af FB síðu Kára
Kári með góðan sigur á KFG
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kári tók á móti liði KFG í 3. deild karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í gær og eftir að hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum í deildinni vann liðið loksins sigur. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik kom Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson Kára yfir í leiknum. Finnbogi Laxdal tryggði síðan sigurinn með sínu öðru marki níu mínútum fyrir leikslok og lokastaðan 2-0 sigur Káramanna. Afar mikilvægur sigur Kára sem er nú í níunda sæti með sjö stig eftir sex umferðir og stutt í toppbaráttuna en þar er lið Sindra í efsta sæti með 13 stig. Lúðvík Gunnarsson fyrrum þjálfari Kára hélt um stjórnartaumana í leiknum gegn KFG í stað Ásmundar Haraldssonar sem var fjarverandi vegna landsliðsverkefnis.\r\n\r\nNæsti leikur Kára er næsta fimmtudag gegn liði Augnabliks í Fífunni í Kópavogi og hefst klukkan 18.",
"innerBlocks": []
}